Skólabílar
Tímatafla fyrir skólaakstur Varmárskóla
Athugið bara stoppað þar sem græn biðskýli eru.
Morgunakstur - Mosfellsdalur
07:35 Egilsmói - Reykjahlíðarvegur - Æsustaðavegur - Hraðastaðir - Mosfellsvegur (Víðir - Tjaldanes)
08:00 Varmárskóli
Morgunakstur - Leirvogstunga
- Fyrri bíll
07:40 Tunguvegur upp Vogatungu og niður Kvíslartungu
07:55 Varmárskóli
- Seinni bíll
07:55 Tunguvegur upp Vogatungu og niður Kvíslartungu
08:08 Varmárskóli
Heimakstur
Leirvogstunga frá Varmárskóla: 13:35 og 16:00
Reykjahverfi frá Varmárskóla: Mánudaga og fimmtudaga 13:35 og 16:00. Þriðjudaga, miðvikudaga og föstudaga 13:45 og 16:00.
Dalur frá Varmárskóla: 13:35, 14:20 og 16:00.
Athugið að skólabílar ganga ekki eins og strætó þannig að tímasetningar geta verið ónákvæmar.
Nemendur og foreldrar eru beðnir um að kynna sér reglur um umgengni í skólabílnum.
Reglur fyrir nemendur um skólabíla
- Myndið einfalda röð við biðstöð skólabílsins, ekki of nálægt gangstéttarbrún.
- Bíðið þar til skólabíllinn hefur stoppað.
- Gangið í einfaldri röð inn í skólabílinn.
- Gangið vel um skólabílinn og öll neysla á mat og drykk er óheimil
- Hvers kyns hávaði, læti og stympingar eru bönnuð í bílnum.
- Í skólabílnum á að nota bílbelti og sitja kyrr í sætum sínum (ekki snúa rangsælis). En heimilt er að standa í skólabíl líkt og í strætó.
- Standið ekki hjá vagnstjóra eða ræðið við hann meðan á akstri stendur.
- Nemendur skulu hlýða vagnstjóra.
- Þegar farið er úr skólabílnum á biðstöð skal ekki fara yfir götu fyrr en bíllinn er farinn.
- Hlaupahjól og önnur hjól geta ekki farið með skólabíl.
- Ef nemendur fara ekki eftir settum reglum eiga þeir á hættu að fá ekki að ferðast með bílnum.
Í skólabílum gilda sömu umgengis- og samskiptareglur og í skólanum.
Foreldrar eru kallaðir til ábyrgðar ef börn þeirra virða ekki settar reglur.