Skólaráð
- Gerð skal áætlun um fundartíma á skólaárinu en skólaráð fundar a.m.k. fimm sinnum á skólaárinu í skólanum, á dagvinnutíma. Skólastjóri undirbýr fundi og boðar til þeirra með dagskrá. Skólastjóri boðar ennfremur til sameiginlegs fundar skólaráðs og stjórnar nemendafélags að lágmarki einu sinni á ári. Skólaráð skal að lágmarki halda einn opinn fund á ári um málefni skólans fyrir aðila skólasamfélagsins.
- Skólaráð starfar skv. ákvæðum 8. gr. laga nr. 91/2008 um grunnskóla. Skólaráð skal skipað níu einstaklingum til tveggja ára í senn, tveimur fulltrúum kennara, ásamt einum fulltrúa annars starfsfólks, tveimur fulltrúum nemenda og tveimur fulltrúum foreldra, auk skólastjóra sem stýrir starfi skólaráðs og ber ábyrgð á stofnun þess. Skólaráð velur að auki einn fulltrúa grenndarsamfélags til að sitja í ráðinu eða viðbótarfulltrúa úr hópi foreldra.
- Miðað skal við að skipað sé í ráðið í upphafi skólaárs, fyrir lok septembermánaðar. Foreldrar skulu kosnir á aðalfundi foreldrafélags samkvæmt þeim starfsreglum sem foreldrafélagið setur sér sbr. 9. gr. laga nr. 91/2008 um grunnskóla. Þá skulu kosnir aðalmenn og jafnmargir varamenn. Varamenn skulu skipaðir í skólaráð og geta tekið sæti í skólaráði á einstökum fundum í forföllum aðalmanns. Fulltrúar kennara skulu kosnir á kennarafundi að hausti það ár sem umboð fulltrúa rennur út og fulltrúi starfsmanna á starfsmannafundi að hausti það ár sem umboð fulltrúa rennur út. Fulltrúar nemenda skulu kosnir að hausti samkvæmt starfsreglum nemendafélags, sbr. 10 gr. laga nr. 91/2008 um grunnskóla.
- Skólaráð tekur þátt í stefnumörkun fyrir skólann og mótun sérkenna hans. Skólaráð fjallar um skólanámskrá skólans, árlega starfsáætlun, rekstraráætlun og aðrar áætlanir um skólastarfið. Skólaráð skal fá til umsagnar áætlanir um fyrirhugaðar meiri háttar breytingar á skólahaldi og starfsemi skóla áður en endanleg ákvörðun um þær er tekin. Skólaráð fylgist almennt með öryggi, aðbúnaði og almennri velferð nemenda. Skólanefnd, sbr. 6. gr. laga nr. 9/2008 um grunnskóla, getur með samþykki sveitarstjórnar falið skólaráði ákveðin verkefni þessu til viðbótar. Skólaráð fjallar ekki um málefni einstakra nemenda, foreldra eða starfsfólks skóla.
- Skólaráð starfar í náinni samvinnu við stjórn foreldrafélag skólans og leitast við að tryggja gagnkvæma miðlun upplýsinga. Fundargerðir hvors aðila skulu vera aðgengilegar á vefsíðu skólans.
Starfsáætlun skólaráðs Varmárskóla 2018-2019
Fundarmenn:Alexander Kárason (fulltrúi grenndarsamfélags), Ásta Benediktsdóttir (fulltrúi kennara), Erla Jóna Steingrímsdóttir (fulltrúi kennara) , Ingrid Lín Chan Óskarsdóttir (fulltrúi nemenda), Jón Ragnars (fulltrúi foreldra), Margrét María Marteinsdóttir (fulltrúi nemenda), Sigríður Ingólfsdóttir (fulltrúi foreldra), Þóranna Rósa Ólafsdóttir (skólastjóri og fundarritari), Þórhildur Elfarsdóttir (skólastjóri).
3. október 2018 – 8:10 – 1. fundur
Starfsáætlun sett saman
Önnur mál – gerð fjárhagsáætlunar
3. desember – 8:10 – 2.fundur
Fjárhagsáætlun 2019
Samræmd próf
Upplýsingar frá nemendaráði
Önnur mál
15. janúar – 8:10 – 3. fundur
Erindi verkefnið
Ýmsar kannanir
Önnur mál
7. mars – 8:10 – 4. Fundur (getur færst yfir í febrúar ef skóladagatal er klárt)
Skóladagatal
Viðhald Varmárskóli
Önnur mál
25.-29. mars – foreldraþing – finna dagsetningu í samráði við Erindi
22.maí 2019 -5 fundur
Skólaárið, rekstur og undirbúningur næsta skólaárs.
Önnur mál
2019 - 2020
Starfsáætlun skólaráðs er inn í starfsáætlun skólans hér á síðunni (www.varmarskoli.is/skolastarfid/skolanamskra/
Fundargerðir
fundagerð_skólaráðs_mars.2020.pdf
2018 - 2019
Eldri fundargerðir
Hægt er að sjá eldri fundargerðir allt til ársins 2010-2011
Fulltrúar í skólaráði Varmárskóla 2019-2020
Fulltrúi kennara og almenns starfsfólks:
- Ásta Benediktsdóttir
- Agnes Jónsdóttir
- Ágústa Ragnarsdóttir
Fulltrúi foreldra og grenndarsamfélags
- Jón Ragnars
- Málfríður Eva Jörgensen
- Hrafnhildur
Fulltrúi nemenda
- Birta Kjartansdóttir
- Rebekka Sunna Sveinsdóttir
Skólastýrur
Anna Greta Ólafsdóttir
Þórhildur Elfarsdóttir