Fréttasafn
2024
apríl, maí, júní, ágúst, september, október.
2023
mars, maí, júní, september, desember.
2022
janúar, febrúar, mars, apríl, september, október.
2021
janúar, mars, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2020
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2019
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, ágúst, september, október, desember.
2018
janúar, febrúar, mars, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2017
janúar, febrúar, mars, apríl, júní, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2016
janúar, febrúar, mars, apríl, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2015
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2014
apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2013
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júlí, ágúst, september.
2012
janúar, febrúar, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2011
febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, nóvember, desember.
2010
Fréttir eftir árum
Dagur íslenskrar tungu haldinn hátíðlegur í yngri deild
17/11/11Nemendur í yngri deild Varmárskóla héldu uppá dag íslenskrar tungu sem haldinn var hátíðlegur 16.nóvember með uppákomum á sal. Sjá má myndir frá deginum á myndasíðunni undir möppunni Dagur íslenskrar tungu yd.
Dagur íslenskrar tungu haldinn hátíðlegur í eldri deild
16/11/11Dagur íslenskrar tungu var haldinn hátíðlegur 16. nóvember í Varmárskóla. Af því tilefni hafa nemendur í eldri deild unnið með íslenska málshætti í íslenskutímum þessa vikuna.
Myndmennt VAL í eldri deildinni
14/11/11Nemendur í Myndmennt VAL hafa verið dugleg að fara á söfn og sýningar í vetur.
Sýningar í Listasal Mosfellsbæjar hafa verið skoðaðar ásamt því að hafa farið í borgina og skoðað sýningu Erró í Listasafni Reykjavíkur og grafíksýningu og verkstæði Íslenskrar Grafíkur í Hafnarhúsinu, en Beta myndmenntakennari er þar í stjórn félagsins og vinnur þar á verkstæðinu.
Nemendur Varmárskóla í úrslit
14/11/11Listasafn Reykjavíkur efndi til teiknisamkeppni fyrir nemendur í 7. bekk og á unglingastigi (8., 9. og 10. bekk) og hefur dómnefnd farið yfir innsendar tillögur. Í samkeppnina bárust 68 myndverk og voru þrjátíu þeirra valin á sýningu í Hafnarhúsinu sem opnaði um helgina og stendur til ársloka. Fjögur myndverk frá nemendum Varmárskóla
1. EMH með brúðuleikhús
11/11/11Krakkarnir í 1. EMH bjuggu til brúðuleikhús eftir þjóðsögunni Búkolla. Þetta verkefni tókst einstaklega vel. Fleiri myndir eru á myndasíðunni.
Dagur gegn einelti 8.nóvember
08/11/11Varmárskóli hringdi skólabjöllum klukkan 13:00 í tilefni dags gegn einelti. Í dag verður undirritaður þjóðarsáttmáli um jákvæð samskipti, sjá síðuna www.gegneinelti.is. Forsætisráðherra er verndari átaksins og munu velferðarráðherra, fjármálaráðherra og mennta- og menningarmálaráðherra undirrita sáttmálann fyrir hönd ríkisstjórnarinnar.
Heimsókn í 4. bekk frá Rauða krossinum
08/11/11Nemendur í 4. bekk í Varmárskóla fengu góða heimsókn frá Rauða krossinum föstudaginn 4. nóvember. Erla Traustadóttir framkvæmdastjóri hjá Kjósarsýsludeild Rauða krossins kynnti starfið og fatasöfnun sem nú er í gangi.
Tími endurskinsmerkja runninn upp
04/11/11Nú þegar svartasta skammdegið fer að skella á þykir rétt að minna aftur á mikilvægi endurskinsmerkja fyrir gangandi vegfarendur í umferðinni.
Hrekkjarvökuball
04/11/11Fimmtudaginn 27. október sl. var haldið Hrekkjavökuball í eldri deild skólans fyrir nemendur í 7. - 10. bekk. Nemendur í nemendafélaginu sáu um að skreyta skólan og nemendur í 10. bekk höfðu útbúið mjög svo hryllilegt draugahús sem vakti mikla lukku. Mjög góð mæting var á ballið og voru nemendur duglegir að mæta í mis hryllilegum búningum eins og myndirnar bera með sér.
4. JV í útitíma.
03/11/11Í dag fimmtudaginn 3. 11. fóru nemendur í 4. JV í útikennslustofuna Vin. Þar unnu börnin verkefni, fóru í ratleik þar sem þurfti að svara spurningum úr íslensku, stærðfræði, náttúrufr. og samfél. og útbjuggu samlokur sem voru grillaðar á eldinum.
Að lokum komu allir saman og drukku heitt kakó og gæddu sér á nýgrilluðum samlokum. Tíminn gekk mjög vel og börnin voru til fyrirmyndar. Hægt er að skoða myndir á myndasíðunni okkar.
Síða 3 af 12