logo
  • Virðing -
  • Jákvæðni -
  • Framsækni -
  • Umhyggja

Fréttir

Opið hús - Máttur tengslanna

19/03/15Opið hús - Máttur tengslanna
Fimmta og jafnframt síðasta opna hús vetrarins hjá Skólaskrifstofu Mosfellsbæjar verður haldið miðvikudaginn 25. mars klukkan 20:00 í Listasal Mosfellsbæjar
Meira ...

Heimsókn á Héraðsbókasafnið

17/03/15Heimsókn á Héraðsbókasafnið
Miðvikudaginn 12. mars fóru börnin í 4 ÁH í heimsókn á Héraðsbókasafnið. Börnin fengu fræðslu um bókasafnið og þeim kennt hvernig á að leita að bókum. Þau unnu verkefni í sambandi við það og lásu síðan bækur. Myndir frá heimsókninni má sjá hér og á myndasíðunni.
Meira ...

Vorhátíð yngri deildar Varmárskóla

17/03/15Vorhátíð yngri deildar Varmárskóla
Vorhátíð yngri deildar Varmárskóla verður haldin miðvikudaginn 18. mars og fimmtudaginn 19. mars 2015. Söngur, leikrit, dans og margt fleira skemmtilegt. Hver skemmtun er um klukkustund. Aðgangseyrir er sá sami og undanfarin ár eða 500 kr. Hann rennur í ferðasjóð hjá 6.bekk sem heldur utan um sýningarskipulag frá A til Ö. Frítt er fyrir nemendur í yngri deild.
Meira ...

Undankeppni Stóru upplestrarkeppninnar

16/03/15Undankeppni Stóru upplestrarkeppninnar
Á dögunum var haldin keppni í upplestri á meðal nemenda í 7. bekk skólans. Þessi undankeppni var liður í undirbúningi fyrir Stóru upplestrarkeppnina sem haldin verður á meðal 7. bekkinga í bænum síðar í þessum mánuði. Síðan í nóvember hafa nemendur æft upplestur í íslenskutímum og kusu sjálfir þá sem þeim fannst standa sig best úr hverjum bekk.
Meira ...

Skólahreysti

16/03/15Skólahreysti
Þann 5. mars tók Varmárskóli þátt í skólahreysti. Að venju var Varmárskóli með níu grunnskólum í undankeppni frá Kópavogi, Álftanesi og Kjalarnesi. Það má með sanni segja að keppendur ásamt stuðningsmönnum hafi verið skólanum og Mosfellsbæ til sóma í Mýrinni en Varmárskóli átti nánast stemmninguna og voru rauðir og litríkir. Keppendurnir okkar sem tóku þátt að þessu sinni voru : Guðlaug Bergmann Sigfúsdóttir (hraðabraut), Nói Hrafn Atlason (hraðabraut), Emilía Núr Magnúsdóttir (armbeygjur og hreystigreip) Guðbjörn Smári Birgisson (upphýfingar og dýfur), Guðrún Elísabet Björgvinsdóttir (varamaður), Aron Kári Ágústsson (varamaður)
Meira ...

Safnaferð 8. bekkjar á þemadegi

13/03/15Safnaferð 8. bekkjar á þemadegi
Miðvikudaginn 11. mars fóru nemendur í 8. bekk í safnaferð í miðborg Reykjavíkur. Farið var með rútu niður í bæ og heimsóttu allir nemendurnir bæði Landnámssafnið og Ljósmyndasafn Reykjavíkur og fengu leiðsögn í gegnum söfnin. Einnig var farið í Hallgrímskirkju og m.a. farið upp í turninn og horft yfir borgina. Dagurinn endaði svo með strætóferð heim. Á myndasíðunni má sjá hluta hópsins í ferðinni.
Meira ...

Íþróttadagur í eldri deild

13/03/15Íþróttadagur í eldri deild
Fimmtudaginn 12. mars var árlegur íþróttadagur haldinn í eldri deilinni. Skemmti starfsfólk og nemendur sér við hina ýmsu leiki í íþróttahúsinu undir dyggri stjórn Siggeirs og Kristínar. Til gamans má geta að nokkrir kennaranemar tóku virkan þátt í dagskránni. Til dæmis um það sem gert var má nefna árlegt reipitog á milli árganga og var það 8. bekkur sem sigraði, en sami árgangur sigraði á síðasta ári. Einnig var farið í óvenjulegt boðhlaup þar sem þátttakendur þurftu að leysa ýmsar þrautir, kúlubolta á milli kennara og nemenda, fótbolta, handbolta, sápuboðhlaup og vatnsblöðrukast. Á myndasíðunni má sjá myndir frá íþróttadeginum.
Meira ...

Árshátíð 8.-10. bekkjar

13/03/15Árshátíð 8.-10. bekkjar
Fimmtudaginn 12. mars var hin árlega árshátíð 8.-10. bekkjar haldin í skólanum. Nemendur mættu prúðbúnir og starfsfólk skólans sá um að taka á móti þeim, elda veislumat undir stjórn Hansa kokks og þjóna til borðs. Veislustjórar voru þau Júlíana og Óðinn í 10. HK. Auk þess flutti Júlíana ræðu fyrir hönd nemendafélagsins.
Meira ...

Lestarátak Ævars vísindamanns

13/03/15Lestarátak Ævars vísindamanns
Undanfarna mánuði tók Varmárskóli þátt í Lestrarátaki Ævars vísindamanns en átakið var ætlað nemendum í 1.-7. bekk. Þátttaka skólans var liður í að auka lestur nemenda og vekja áhuga á lestri. Í byrjun mars sendi skólinn fullan kassa af lestrarmiðum til Heimilis og skóla sem aðstoðaði Ævar við keppnina. Auk þess héldum við okkar eigin keppni innan skólans og hlaut 2.SAH verðlaun fyrir að hafa lesið flestar bækur á meðan á átakinu stóð. 2.ÞF fékk verðlaun fyrir best unna lestrarkassann. Auk þessa fengu allir nemendur sem tóku þátt í átakinu sérstaka viðurkenningu frá skólanum.
Meira ...

Nýtt tölublað Varmártíðinda komin út

12/03/15Nýtt tölublað Varmártíðinda komin út
Fjórða tölublað Varmártíðinda var að koma út. Þar má lesa um það sem áhugavert hefur verið að gerast í Varmárskóla að undanförnu. Fréttablöðin má nálgast á forsíðunni undir hnappnum Fréttabréf.
Meira ...

Síða 52 af 84

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira