Fréttasafn
2024
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, ágúst, september, október, nóvember.
2023
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2022
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2021
febrúar, mars, apríl, maí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2020
janúar, febrúar, mars, maí, júní, ágúst, september, október, nóvember.
2019
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2018
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2017
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2016
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2015
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2014
2013
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, ágúst, september.
2012
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2011
febrúar, mars, apríl, maí, júní, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2010
Varmárskóli á grænni grein
28.01.2010 10:43Með því að sækja um hina alþjóðlegu viðurkenningu, Grænfánann, bættist Varmárskóli í hóp skóla og leikskóla á landinu sem eru þátttakendur í verkefninu Skólar á grænni grein.
Skólar á grænni grein er alþjóðlegt verkefni til að auka umhverfismennt og styrkja umhverfisstefnu í skólum. Þeir skólar sem vilja komast á græna grein í umhverfismálum leitast við að stíga skrefin sjö. Þegar því marki er náð fá skólarnir leyfi til að flagga Grænfánanum næstu tvö ár en sú viðurkenning fæst endurnýjuð ef skólarnir halda áfram góðu starfi. Grænfáninn er umhverfismerki sem nýtur virðingar víða í Evrópu sem tákn um árangursríka fræðslu og umhverfisstefnu í skólum.
Skrefin sjö eru ákveðin verkefni sem efla vitund nemenda, kennara og annarra starfsmanna skólans um umhverfismál. Verkefnin eru bæði til kennslu í bekk og til að bæta daglegan rekstur skóla. Þau auka þekkingu nemenda og skólafólks og styrkja grunn að því að tekin sé ábyrg afstaða og innleiddar raunhæfar aðgerðir í umhverfismálum skóla. Jafnframt sýnir reynslan í Evrópu að skólar sem taka þátt í verkefninu geta sparað talsvert í rekstri.
Á myndunum hér að neðan er húsvörðurinn og deildarstjórinn að tæma fyrsta kassann af gæðapappír í gáminn. 2. BI er mjög duglegur að flokka ruslið. Hér eru myndir af þeim og flokkunarílátunum þeirra.