logo
  • Virðing -
  • Jákvæðni -
  • Framsækni -
  • Umhyggja

Val hjá unglingadeild

06.05.2015 11:49

Nú er komið að því að nemendur í 8. - 10.bekk hugi að valgreinum fyrir næsta skólaár. Valbókina má sjá hér á þessari síðu ásamt valblöðum. Foreldrar eru beðnir um að aðstoða nemendur að vanda og ígrunda valið vel.

Valbók Varmárskóla. 

Þar má nálgast upplýsingar um fyrirkomulag valsins, hvaða valáfangar eru í boði og möguleika til að láta meta íþrótta- og félagsstarf til vals. Hver nemandi þarf að prenta út viðeigandi valblað, fylla það út og koma því til ritara eða deildarstjóra eldri deildar. Óðinn Pétur deildarstjóri er einnig til viðtals ef nemendur þurfa frekari útskýringa eða aðstoð með valið.

Til baka

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira