Fréttasafn
2024
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, ágúst, september, október, nóvember.
2023
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2022
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2021
febrúar, mars, apríl, maí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2020
janúar, febrúar, mars, maí, júní, ágúst, september, október, nóvember.
2019
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2018
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2017
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2016
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2015
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2014
2013
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, ágúst, september.
2012
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2011
febrúar, mars, apríl, maí, júní, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2010
Þemadagar 7. - 10. október í Varmárskóla
07.10.2015 09:52Þemadagar í Varmárskóla
Dagana 7. - 10. október verða þemadagar í Varmárskóla hjá 1. - 10. bekk.
Við vekjum athygli foreldra á að skóladeginum lýkur kl. 13:10 þessa daga og leggjum áherslu á að nemendur komi klæddir eftir veðri.
Yfirskrift þemadagana er Heilbrigði og velferð. En heilbrigði og velferð er einn af fimm grunnþáttum menntunar og Mosfellsbær er heilsueflandi samfélag.
Skipulag:
- Þemadagar verða miðvikudag, fimmtudag og föstudag.
- Skóla lýkur kl. 13:10 þessa daga. Þau börn sem eru í frístundaseli fara beint þangað.
- Rúta heim kl. 13:20
- Við bjóðum öllum nemendum upp á ávaxtabita í kaffinu og nemendur serm eru í áskrift í mötuneyti fá hádegismat áður en skóla lýkur
- Öllum árgöngum verður blandað saman, sem er nýjung á þemadögum skólans.
- Við skiptum 740 nemendum upp í 36 hópa. Nemendur 10.bekkja verða hópstórar en kennarar sjá um stöðvastjórnunina. Í hverjum hópi verða tveir nemendur úr hverjum árgangi eða ríflega 20 nemendur í hóp. Auk þess verður hópur kennara í gulum vestum sem nemendur geta leitað til eftir þörfum.
- Allir nemendur fara í gegnum níu stöðvar og reiknað er með klukkustund á hverri stöð:
Sjálfsmynd
- Forvarnir/skyndihjálp
- Hreinlæti/snyrtimennska
- Heimilisfræði
- Myndlist
- Náttúrufræði
- Leikir/hreyfing
- Hvíld/ Jóga
- Hreyfing/velferð
- Foreldrum er að sjálfsögðu velkomið að líta við. Látið vita af ykkur hjá ritara og þiggið kaffisopa. Það verður vel tekið á móti ykkur.
Gildin okkar verða höfð að leiðarljósi þessa daga sem og aðra:
Virðing - Jákvæðni - Framsækni - Umhyggja