Fréttasafn
2024
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, ágúst, september, október, nóvember.
2023
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2022
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2021
febrúar, mars, apríl, maí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2020
janúar, febrúar, mars, maí, júní, ágúst, september, október, nóvember.
2019
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2018
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2017
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2016
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2015
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2014
2013
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, ágúst, september.
2012
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2011
febrúar, mars, apríl, maí, júní, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2010
Að vera besta útgáfan af sjálfum sér - opið hús hjá Fræðslu og frístundasviði Mosfellsbæjar
24.10.2017 12:40Á opnum húsum er lögð áhersla á hagnýt ráð varðandi uppeldi og samskipti við börn og unglinga. Ráð sem foreldrar, systkin, amma og afi, þjálfarar, kennarar og allir þeir sem koma að uppvexti barna og unglinga geta nýtt sér.
Fyrirlesari að þessu sinni er Bjarni Fritzson eigandi sjálfstyrkingarfyrirtækisins "Út fyrir kassann", rithöfundur og þjálfari. Í fyrirlestri sínum mun Bjarni fjalla um efni sem hann fór nýverið í með öllum unglingum Mosfellsbæjar á Geðheilsudeginum þann 5. október sl.
Í þeim fyrirlestri fjallaði Bjarni um hvað það þýðir að vera leiðtogi í sínu lífi, mikilvægi þess að stefna ávallt að því að verða besta útgáfan af sjálfum sér og hvernig það getur haft jákvæð áhrif á geðheilsu.
Hann fjallaði einnig um mikilvægi þess að nýta tímann, taka góðar ákvarðanir og um það hvernig er hægt að nota núvitund til að bæta líðan.
Láttu þetta áhugaverða innlegg ekki fram hjá þér fara, sjáumst!