logo
  • Virðing -
  • Jákvæðni -
  • Framsækni -
  • Umhyggja

Kvíði hjá börnum og unglingum

21.02.2019 08:25

Miðvikudaginn 27. febrúar verður þriðja opna hús vetrarins á vegum fræðsluskrifstofu Mosfellsbæjar. Að þessu sinni verður fyrirlesturinn haldinn í Framhaldsskóla Mosfellsbæjar og hefst kl. 20:00.

Steinunn Anna Sigurjónsdóttir sálfræðingur og einn af stofnendum Litlu Kvíðamiðstöðvarinnar mun fjalla um kvíða hjá börnum og unglingum. Hún mun fara yfir orsakir hans og hvað þurfi að hafa í huga til að sporna við hann verði að vandamáli, einnig kemur hún til með að fjalla um algeng mistök sem foreldrar gera og leitast við að gefa hagnýt og uppbyggileg ráð.

Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir

Kvíði hjá börnum og unglingum

Til baka

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira