logo
  • Virðing -
  • Jákvæðni -
  • Framsækni -
  • Umhyggja

Kennsludagar 27. - 28. maí hjá 7., 8., 9., 10. bekk

27.05.2021 08:21

Á morgun lýkur kennsludegi á hádegi hjá 7., 8., og 9. bekk. 10. bekkur verður eitthvað lengur því þau sjá um skreytingu á skólanum vegna árshátíðar sem er um kvöldið.

Boðið verður upp á aukarútu í Dalinn kl. 13:00.

Opnum húsið fyrir árshátíð á morgun kl. 18:30, áætlað er að allir verði  sestir til borðs um 18:45.

Kennarar koma til með að bregða sér alls kyns hlutverk, þjóna til borðs, sinna eftirliti við komu nemenda, fylgjast með á dansgólfinu og sýna sína bestu takta allt kvöldið.

Árshátíðarlok eru kl. 22:30 og eru foreldrar beðnir um að sækja börn sín.

Á föstudaginn er mæting kl. 10:00 að morgni fyrir 7., 8., 9. og 10. bekk og skólarútur verða á ferðinni miðað við þann tíma.

Til baka

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira