Fréttasafn
2024
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2023
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2022
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2021
febrúar, mars, apríl, maí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2020
janúar, febrúar, mars, maí, júní, ágúst, september, október, nóvember.
2019
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2018
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2017
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2016
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2015
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2014
2013
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, ágúst, september.
2012
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2011
febrúar, mars, apríl, maí, júní, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2010
Skólabyrjun í janúar 2022
02.01.2022 18:18Við minnum á að á morgun er skipulagsdagur í skólanum og skóli hefst svo hjá nemendum 4.janúar. Eins og kom fram í bréfi sem framsent var frá Almannavörnum munum við gera okkar besta til að halda úti eðlilegu skólastarfi við þessar krefjandi aðstæður sem nú eru uppi. Það má þó gera ráð fyrir auknum forföllum vegna veikinda og ef starfsmenn þurfa að fara í sóttkví. Við munum reyna að manna öll forföll en höfum þó eftirfarandi til viðmiðunar. Fyrst er reynt að manna með kennurum sem ekki eiga að vera í kennslu, ef það dugar ekki er sérkennsla felld niður og sérkennarar taka bekki. Ef það dugar ekki til getur komið til þess að stuðningsfulltrúar séu beðnir um að gæta nemenda og jafnvel að eldri nemendur (5. og 6. bekkur) verði sendir heim áður en skóladegi á að ljúka.
Við vonum að þið hafið skilning á þessu.
Bestu kveðjur með von um áframhaldandi gott samstarf.
Starfsfólk Varmárskóla