Fréttasafn
2024
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2023
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2022
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2021
febrúar, mars, apríl, maí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2020
janúar, febrúar, mars, maí, júní, ágúst, september, október, nóvember.
2019
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2018
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2017
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2016
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2015
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2014
2013
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, ágúst, september.
2012
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2011
febrúar, mars, apríl, maí, júní, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2010
Vikufréttir Varmárskóla
11.02.2022 16:33Þó að vikan hafi byrjað brösuglega hjá okkur eins og öðrum endaði hún skemmtilega eins og allar vikur í Varmárskóla. Snjórinn hefur verið nýttur í margvísleg verkefni og upplifanir. Það hefur verið virkilega gaman fyrir nemendur að leika sér í frímínútum, gera virki og renna á rassaþotunum og allt hefur það verið stórslysalaust.
Þessa dagana er verið að vinna með margbreytileika mannlífsins í öllum árgöngum skólans. Verkefnin eru fjölbreytt og beinast að flestu því sem greinir okkur að sem manneskjur, aldri, fjölskyldugerð, kyni, trúarbrögðum, upplifunum, húmor og mörgu fleiru. Í meðfylgjandi myndum má sjá dæmi um hvernig nemendur þeyta yfir sig snjó og finna kuldann frá honum, samvinnu um lausn á því viðfangsefni að ná í grýlukerti, vinnu með margbreytileika mannlífsins í gegnum bækurnar um Herramenn og ólík ættartré og svo að lokum teiknimyndasögu frá nemanda í 6.bekk um ólík viðbrögð sem fólk fær við tilfinningum sínum og svo athöfnum.
Við minnum á að í næstu viku er vetrarfrí og því aðeins skóli hjá nemendum á mánudag og þriðjudag.
Hafið það gott um helgina.
Kveðja
Starfsfólkið í Varmárskóla