Fréttasafn
2024
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2023
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2022
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2021
febrúar, mars, apríl, maí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2020
janúar, febrúar, mars, maí, júní, ágúst, september, október, nóvember.
2019
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2018
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2017
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2016
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2015
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2014
2013
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, ágúst, september.
2012
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2011
febrúar, mars, apríl, maí, júní, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2010
Vikufréttir Varmárskóla
21.10.2022 13:47Síðastliðinn laugardag héldum við samræðuþing foreldra og starfsmanna til að ræða hvaða gildi og áherslur væru mikilvægastar í skólastarfi næstu ára. Þingið tókst mjög vel og samræður voru málefnalegar og skemmtilegar. Við ræddum líka um hlutverk foreldra í sambandi við skólagöngu barna sinna og hvað aðilar skólasamfélagsins gætu sameinast um að gera til að stuðla að samkennd, vináttu og virðingu í skólasamfélaginu. Niðurstöður verða notaðar til að skrifa stefnu skólans og svo getum við vonandi sent foreldrum samantekt frá vinnu þingsins.
Talandi um samkennd, vináttu og virðingu. Við leggjum mikla áherslu á að vinna með uppbyggileg samskipti með nemendum. Við búum til bekkjarsáttmála, höldum bekkjarfundi og tökum allskonar mál fyrir eftir því sem tækifæri bjóðast. Í þessari viku hefur 6.bekkur verið að vinna með netsamskipti og orðanotkun barna hvert við annað. Nemendur gerðu veggspjöld með heilræðum og ræddu mikilvægi þess að sýna virðingu í netsamskiptum.
Dæmi um heilræði frá nemendum eru:
Allt sem þú gerir á netinu endurspeglar hver þú ert.
Komdu fram við aðra eins og þú vilt að aðrir komi frá við þig.
Ekki taka þátt í neinu sem þú veist ekki hvað er.
Mundu að allt sem þú setur á netið er opið öllum, alltaf.
Þú berð ábyrgð á því sem þú segir og gerir á netinu.
Þetta er umræða sem alltaf verður að halda vakandi og mikilvægt að þið, foreldrar, gerið það líka og fylgist sérstaklega vel með hvað er í gangi í netheimum. Þar fara ljótustu samskiptin fram núna. Börn þurfa leiðbeiningar með þetta allt saman og það er ástæða fyrir því að aldurstakmörk eru sett bæði á samfélagsmiðlum og í mörgum tölvuleikjum. Þau eru til að börnin okkar að fái að þroskast í umhverfi sem þau ráða við, hjálpa okkur við að setja eðlileg mörk og búa börnunum hæfilega verndandi umhverfi.
Næsti skóladagur nemenda er fimmtudagurinn 27.október.
Hafið það gott í vetrarfríinu
Starfsfólk Varmárskóla