Fréttasafn
2024
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, ágúst, september, október, nóvember.
2023
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2022
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2021
febrúar, mars, apríl, maí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2020
janúar, febrúar, mars, maí, júní, ágúst, september, október, nóvember.
2019
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2018
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2017
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2016
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2015
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2014
2013
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, ágúst, september.
2012
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2011
febrúar, mars, apríl, maí, júní, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2010
Vikufréttir Varmárskóla 3.maí 2024
03.05.2024 16:48Það er aldeilis búið að vera mikið um að vera hjá okkur þessari fjögurra daga viku. Á mánudaginn var ,,heimkomuhátíð” frá Mars hjá 3.KP og á fimmtudag fór svo allur 3.bekkur á tónleika með Sinfóníuhljómsveit Íslands í Hörpunni. Það er ekki bara viðburður að fara á tónleika því það er líka skemmtilegt að fara með öllum bekkjarfélögum sínum í bæjarferð og það alveg niður í miðbæ.
Félagar úr Kiwanis komu og færðu nemendum 1.bekkjar hjálma í dag og rúsínan í pylsuendanum voru svo tónleikar með bæjarlistamönnum Mosfellsbæjar, Gildrunni, sem buðu nemendum Varmárskóla á alvöru rokktónleika í dag. Það má því segja að það hafi verið breidd í menningarviðburðum okkar þessa vikuna, bæði sinfónían og Gildran. Það var frábært að fylgjast með krökkunum okkar í þessu, sumir misstu sig í gleði og stuði meðan öðrum fannst hávaðinn full mikill. Hér er hlekkur á smá myndbandsbút frá tónleikunum. https://youtu.be/yyjoyCIlkXM
En svona er lífið sjálft og gaman fyrir okkur að fá að prófa ólíkar tónlistartegundir í skólastarfinu.
Við minnum ykkur á mikilvægi þess að hjól sem nemendur koma á í skólann séu læst meðan þau eru geymd við skólann og að við getum ekki tryggt að ekki sé fiktað í þeim meðan þau standa hér fyrir utan. Hið sama á við um hlaupahjól og annað útidót sem nemendur koma með.
Í næstu viku eru víst líka bara fjórir vinnudagar þar sem frídagur er fimmtudaginn 9.maí.
Hafið það gott um helgina.
Starfsfólkið í Varmárskóla