logo
  • Virðing -
  • Jákvæðni -
  • Framsækni -
  • Umhyggja

Vikufréttir Varmárskóla 23.október 2024

23.10.2024 14:23

Þá er þessari stuttu viku að ljúka og vetrarfrí nemenda að hefjast.

Af því tilefni langar mig að minna ykkur öll á hversu mikilvægt það er þjálfa lesturinn, helst alla daga vikunnar, en að lágmarki 5 sinnum í viku. Með nýja lestrarappinu okkar er mun auðveldra fyrir okkur að fylgjast vel með hvernig gengur með heimalesturinn og í þessari viku getum við séð að 65% nemenda lásu heima í gær og aðeins 54% náðu lestrarmarkmiðum síðustu viku. Það gildir með lesturinn eins og allt annað að þess duglegri sem maður er að æfa sig þess meiri líkur eru á framförum. Nú getum við líka skoðað yfirlit yfir stöðu skólans í Lesfimiprófum Menntamálastofnunar. Við erum ýmist rétt fyrir ofan landsmeðaltal eða alveg á því í öllum árgöngum og getum því ágætlega við unað, en auðvitað væri gaman að gera enn betur.

Eitt af því sem við leggjum áherslu á er sköpun í skólastarfi og með þessari frétt fylgja myndir af verkefnum sem nemendur eru að vinna í verkgreininni ,,áhugasviði”. Þar fær sköpunarkrafturinn sannarlega að njóta sín eins og sjá má.  Þá var líka gaman að kíkja inn hjá forritunarhópnum þar sem allir voru svo uppteknir af verkefninu sínu að engin veitti heimsókn athygli.

Við tókum líka þátt í bleikum október og sumir bekkir voru hreinlega alveg bleikir.

Næsti skóladagur nemenda er þriðjudagurinn 29.október.

Hafið það gott um helgina

Starfsfólkið í Varmárskóla

Til baka

Myndir með frétt

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira