logo
  • Virðing -
  • Jákvæðni -
  • Framsækni -
  • Umhyggja

Vikufréttir Varmárskóla 22.nóvember 2024

22.11.2024 16:06

Þessi síðasta vika var nú með hefðbundnari skólavikum hjá okkur og mörgum finnst það hreinlega tilbreyting. Kennarar skólans fóru í heimsókn í Sæmundarskóla í Reykjavík til að kynna sér hvernig þar er unnið með hæfnimiðað nám því öll erum við að reyna að læra og bæta okkur dag frá degi.

Við erum á fullu í lestrarátakinu og það er mjög gaman að sjá hvernig risaeðlurnar raða sér á veggina en ekki síður að heyra nemendur tala á göngum skólans um hvernig bekkjunum gengur að safna eðlum. Við sjáum líka alltaf niðurstöðutölur í læsisappinu og það verður að segjast eins og er að heimalestur mætti alveg vera markvissari. Aðeins 62% nemenda skráðu heimalestur í gær.

Við fengum niðurstöður úr könnun Skólapúlsins fyrir 2.-5.bekk í vikunni og getum ekki annað en verið sátt við þær. Niðurstöður eru dregnar saman í þrjú atriði og erum við á eða fyrir ofan meðaltal í þeim öllum. Við gerum okkur alveg grein fyrir að þetta er nokkurs konar ,,punktmæling” það er segir bara til um hvernig nemendur svöruðu á þessum tiltekna tíma en hún gefur okkur samt sem áður vísbendingar um hvernig nemendum líður almennt í skólanum. Í svari við spurningunum Ánægja af lestri og Ánægja með skólann erum við nákvæmlega á landsmeðaltali og í spurningunni Vellíðan í skólanum erum við 0,3 stigum fyrir ofan meðaltal. 

Í næstu viku munu kennarar úr samstarfskóla okkar í Wales, YSGOL Y LLYS verða í heimsókn hjá okkur. Allir árgangar hafa gert eitthvað til að undirbúa komu þeirra, læra orð á welsku, syngja lag, fræðst um tungumál, land og sögu Wales og ekki síst læra að teikna og lita dreka sem er einmitt einkennisdýr í welska fánanum.

Hafið það gott um helgina

Starfsfólkið í Varmárskóla

Til baka

Myndir með frétt

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira