Fréttasafn
2024
apríl, maí, júní, ágúst, september, október.
2023
mars, maí, júní, september, desember.
2022
janúar, febrúar, mars, apríl, september, október.
2021
janúar, mars, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2020
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2019
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, ágúst, september, október, desember.
2018
janúar, febrúar, mars, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2017
janúar, febrúar, mars, apríl, júní, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2016
janúar, febrúar, mars, apríl, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2015
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2014
apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2013
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júlí, ágúst, september.
2012
janúar, febrúar, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2011
febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, nóvember, desember.
2010
Fréttir eftir árum
Norðurlandakvöld sjöttu bekkinga
25/02/13Dagana 18.-20.febrúar buðu nemendur 6.GA, 6.ÁGM og 6.HG foreldrum/ættingjum á kynningu á Norðurlöndunum. Þau eru búin að læra ýmislegt um Norðurlöndin frá því í október. Þau bjuggu til glærukynningu og gerðu veggspjöld. Dönsuðu færeyskan hringdans sem þau lærðu hjá Svanhildi danskennara og sundu undir "Á Sprengisandi". Einnig höfðu þau eldað ýmsan mat frá löndunum í tímum hjá Guðrúnu Sig heimilisfræðikennara. Það voru því glæsilegirnorrænir réttir sem þau buðu svo gestum sínum í lok sýningar. Nemendur mega vera stolt af verkum sínum og framkomu.
Myndir frá boðunum eru á myndasíðu: 6b-Norðurlandakynning
Áhugaverð eðlisvísindasýning í miðrými Smáralindar
25/02/13Dagana 21. febrúar - 6. mars er áhugaverð eðlisvísinda sýning í miðrými Smáralindar. Þetta er þýsk sýning sem fer um heiminn til að vekja áhuga almennings á heimi eðlisvísinda.
Kíkið á sýninguna og uppgötvið ótrúleg og heillandi heim eðlisvísinda.
Opið hús HJÁ SKÓLASKRIFSTOFU - Sjálfbærni, ákall um ábyrgð og áhuga
22/02/13Á Opnu húsi Skólaskrifstofu Mosfellsbæjar miðvikudaginn 27. febrúar verður sjónum beint að sjálfbærni. Í nýjum aðalnámskrám leik- og grunnskóla er horft til 6 grunnþátta í skólastarfi sem eru læsi, sjálfbærni, heilbrigði og velferð, lýðræði og mannréttindi, jafnrétti og sköpun.
Skólaþing i Varmárskóla
21/02/13Skólaráð og foreldrafélag Varmárskóla standa fyrir skólaþingi fimmtudaginn 21.febrúar kl. 20:00-21:30 í sal eldri deildar Varmárskóla.
Foreldrar, starfsfólk og velunnarar skólans eru hvattir til að koma og taka þátt í umræðu um skólamál.
Dagskrá:
Fundarstjóri: Guðlaug Ósk Gunnarsdóttir
Kynning á skólaráði – hvert er hlutverk þess og verkefni? – Þórhildur Elfarsdóttir skólastjóri ásamt skólaráði
Olweus – Stefanía Ósk verkefnisstjóri Olweusar kynnir fyrstu niðurstöður Olweusar könnunar frá nóv 2012
Skólapúlsinn – Þóranna R. Ólafsdóttir skólastjóri fer yfir niðurstöður Skólapúlsins með samanburði á milli ára – hvað felst í Skólapúlsinum?
Nemendaráð – Fulltrúar nemendaráðs kynna hvert þeirra hlutverk er í skólasamfélaginu
Nýtt deiliskipulag um „drop off“ (bílastæði og aðkomu) við Varmárskóla – Þráinn Hauksson landslagsarkitekt og Elías Pétursson formaður skipulagsnefndar kynna
Afturelding – fulltrúi frá Aftureldingu kemur og fjallar um íþróttaiðkun barna
Val í eldri deild - Óðinn Pétur Vigfússon
Eftir erindin verður kaffispjall og verða eftirfarandi aðilar til staðar til að svara spurningum og ræða málin við fundargesti á mismunandi borðum:
- Skólaráð
- Nemendaráð
- Foreldrafélag
- Námsráðgjafi
- Afturelding
Hvetjum alla áhugasama að koma og taka þátt í samræðum um skólamál
Stóra upplestrarkeppnin í 7.bekk - Lið Varmárskóla valið
15/02/13Fimmtudaginn 7. febrúar voru fulltrúar Varmárskóla í Stóru upplestrarkeppnina 2013 valdir. Nemendur í 7. bekk hafa frá því í nóvember allir æft upplestur í íslenskutímum undir leiðsögn kennara sinna. Tólf nemendur sem áður höfðu verið valdir fulltrúar sinna íslenskuhópa lásu bæði sögu og ljóð í hátíðarsalnum. Dómarar voru Guðlaug Guðsteinsdóttir, Guðrún Esther Árnadóttir og Birgir D.Sveinsson.
Fulltrúar okkar í keppninni á móti Lágafellsskóla sem haldin verður þann 7. mars verða:
Agnes Emma 7.GÓG
Amanda Lind 7. FFE
Anna Pálína 7. FFE
Robert David 7. FFE
Aníta Hulda 7. FFE
Til vara er Guðmundur Árni 7. GÓG
Þessir nemendur munu æfa sig í upplestri hjá Gunnhildi Sigurðardóttur kennara fram að lokakeppninni. Sjá myndasíðu - Upplestrarkeppni - forval 7b
Öskudagur í Varmárskóla
13/02/13Öskudagurinn í Varmárskóla var að venju skrautlegur og skemmtilegur. Nemendur og starfsfólk mættu flestir í búningum í skólann. Nemendur í 5. og 6. bekk voru með karíoke, sjöundi til tíundi bekkur fór í kónga og skemmti sér á sal, kötturinn var sleginn úr tunnunni hjá nemendum 1.-6.bekkja sem og dúndrandi diskó var yfir daginn. Myndir frá deginum má sjá á myndasíðunni - öskudagur.
Heimsókn í Vísindasmiðju Háskóla Íslands
11/02/13Fimmtudaginn 7.febrúar fór 4. SBJ ásamt nemendum í Varmárstofu í heimsókn í Vísindasmiðju Háskóla Íslands í Háskólabíói. Nemendur fengu fræðslu um sólkerfið og fengu að horfa á og taka þátt í ýmsum eðlisfræðitilraunum. Þau fengu að sjá ýmsa ferla pendúla, skoða sig sjálf í ýmsum gerðum spegla og sjá hvernig rafmagn verður til og mismunandi notkun þess. Þetta var skemmtileg og áhugaverð ferð og krakkarnir stóðu sig vel. Við hvetjum alla til að kynna sér Vísindasmiðju HÍ. Sjá fleiri myndir á myndasíðunni - Vísindaferð
Börnin í 1-EDJ að vinna í verkefnabókinni sinni.
05/02/13Þann 24. og 25. janúar síðastliðinn fengu börnin í 1.-EDJ að fara í Vinaleið hjá Þórdísi Ásgeirsdóttur. Þar læra börnin að tefla og má sjá árangurinn í verkefna-og úrklippubókinni. Sum teiknuðu mynd af taflborðinu á meðan aðrir teiknuðu mynd af taflmönnunum eins og til dæmis drottningunni. Sjá myndir á myndasíðu - 1-EDJ verkefnabók.
Góð gjöf frá Björgunarsveitinni Kili
10/01/13Um áramótin gaf Björgunarsveitin Kjölur á Kjalarnesi Varmárskóla bekkjarsett af hlífðargleraugum til að nota í eðlisfræði í unglingadeild. Um er að ræða vönduð hlífðargleraugu sem falla vel að andliti nemenda en eitt af þeim atriðum sem farið er yfir í eðlisfræði er öryggi í mismunandi kringumstæðum lífsins. Björgunarsveitinni er þakkað fyrir góða gjöf sem mun koma sér vel á komandi tímum.
Skóli hefst aftur hjá nemendum 7.janúar 2013
03/01/13Gleðilegt ár.
Skóli hefst að nýju eftir jólafrí 7.janúar 2013.
Síða 6 af 6
- Fyrri síða
- 1
- ...
- 4
- 5
- 6