logo
  • Virðing -
  • Jákvæðni -
  • Framsækni -
  • Umhyggja

Fréttir

Facebook síða bókasafnsins í yngri deildinni

04/09/19
Stofnuð hefur verið facebook síða, Skólasafn Varmárskóla, fyrir bókasafn yngri deildar. Tilgangurinn með síðunni er að veita foreldrum, kennurum og öðru áhugafólki um skólabókasöfn smá innsýn inn í starfsemi safnsins. Á síðunni verða birtar upplýsingar um hvað er í gangi á bókasafninu ásamt skemmtilegum og fræðandi molum um bækur og lestur. Ekki verða birtir myndir af nemendum þar.
Meira ...

Skólaakstur - skráning nemenda

27/08/19
Skólaárið 2019-2020 verður sú nýbreytni höfð á skólaakstri til og frá Varmárskóla að skrá verður nemanda í skólaakstur. Skólaaksturinn er, líkt og áður, nemendum að kostnaðarlausu en keyrt er úr Mosfellsdal, Helgafellslandi, Reykjahverfi og Leirvogstungu.
Meira ...

Skólasetning 23. ágúst - kennsla hefst 26. ágúst.

14/08/19
Varmárskóli verður settur á sal eldri deildarinnar föstudaginn 23. ágúst, sjá nánari tímasetningar hér að neðan. Nemendur í 1.bekk verða boðaðir í viðtöl hjá umsjónarkennurum áður en skóli hefst.
Meira ...

Takk fyrir veturinn

12/06/19
Þökkum samstarfið í vetur og vonum að þið hafið það sem allra best í sumar Skólasetning í skólanum verður föstudaginn 23. ágúst.
Meira ...

Skólaslit vor 2019

12/06/19Skólaslit vor 2019
Skólanum var formlega slitið fimmtudaginn 6. júní. Að þessu sinni var sameiginleg dagskrá fyrir 1.-9.bekk á skólalóðinni í blíðskapar veðri.
Meira ...

Varmárskóli fær Grænfánann í fjórða sinn

11/06/19Varmárskóli fær Grænfánann í fjórða sinn
Skólar á grænni grein er alþjóðlegt verkefni til að auka umhverfismennt og styrkja umhverfisstefnu í skólum. Þeir skólar sem vilja komast á græna grein í umhverfismálum leitast við að stíga skrefin sjö en þau eru: 1. Umhverfisnefnd starfar við skólann. 2. Mat á stöðu umhverfismála. 3. Áætlun um aðgerðir og markmið. 4. Eftirlit og endurmat. 5. Námsefnisgerð og verkefni. 6. Að upplýsa og fá aðra með. 7. Umhverfissáttmáli skólans.
Meira ...

Líf og fjör á síðustu dögunum fyrir sumarfrí

11/06/19Líf og fjör á síðustu dögunum fyrir sumarfrí
Líf og fjör á síðustu dögunum fyrir sumarfrí. Farið var m.a. í bæjarferðir, gönguferðir og fengist við ýmis viðfangsefni.
Meira ...

Síðustu dagarnir fyrir sumarfrí

31/05/19
Dagana 3.-5. júní verða uppbrotsdagar og kennsla því með óhefðbundnum hætti. Skóladagurinn hefst samkvæmt venju kl 8:10 en lýkur kl 13:00. Skólabíllinn fer kl 13:10. Mánudaginn 3. júní er útivistardagur og einhverjir fara í ferðir aðrir nýta nánasta umhverfi skólans til útiveru. Það er e.t.v. rétt að minna á sólarvörnina.
Meira ...

Glæsileg danssýning

31/05/19
Danssýningin á miðvikudaginn var heppnaðist vel í alla staði og sýndu nemendur bæði frumsamda dansa og hópdansa. Áhorfendapallar voru þéttsetnir og fengu nemendur góða hvatningu.
Meira ...

Hagir og líðan ungs fólks í Mosfellsbæ

27/05/19
Þriðjudaginn 28. maí kl. 18:00 mun Margrét Lilja Guðmundsdóttir frá Rannsókn og greiningu fara yfir niðurstöður úr könnuninni ,,Ungt fólk 2019“ sem nemendur í 8.-10. bekk taka árlega þátt í. Fundurinn verður í Hlégarði og eru allir sem láta sig málefni barna- og unglinga í Mosfellsbæ varða hvattir til að mæta.
Meira ...

Síða 21 af 86

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira