logo
  • Virðing -
  • Jákvæðni -
  • Framsækni -
  • Umhyggja

Fréttir

Bangsa-og náttfatadagur 3. ÁH

23/11/17Bangsa-og náttfatadagur 3. ÁH
Miðvikudaginn 1. nóvember var bangsa- og náttfatadagur hjá 3. ÁH, í tilefni af alþjóðlega bangsadeginum sem var 27. október. Það komu margir gestir (bangsar) í heimsókn, bæði stórir og smáir. Þeir voru prúðir og stilltir. Börnin skrifuðu bangsasögu. Bangsadagurinn gekk mjög vel og allir skemmtu sér vel. Myndir
Meira ...

Frábærir þemadagar!

17/11/17
Í dag var síðasti dagur þemavinnunnar hjá okkur í Varmárskóla. Krakkarnir spreyttu sig á fjölbreyttum verkefnum inni og úti. Myndirnar segja meira en mörg orð.
Meira ...

4. SBT á hrekkjavöku

10/11/17
Föstudaginn 27. október var hræðilegur föstudagur í Varmárskóla Þá sáust ýmsar furðuverur á kreiki í skólanum. Myndir frá 4. SBT eru á myndasíðu skólans.
Meira ...

Flottur föstudagur- Hrekkjavaka hjá 3. ÁH

06/11/17
Það voru margar skrýtnar verur á sveimi hjá 3. ÁH í dag. Það voru m.a. sjóræningi, bófi, uppvakningar, draugar, skrýtnar dúkkur og prinsessur. Allir voru sammála um að þetta væri skemmtilegur dagur.
Meira ...

Símakerfið í skólanum liggur niðri!

06/11/17
Hér í Varmárskóla virkar símakerfið ekki eins og er. Látum vita um leið og það kemst í lag.
Meira ...

Að vera besta útgáfan af sjálfum sér - opið hús hjá Fræðslu og frístundasviði Mosfellsbæjar

24/10/17Að vera besta útgáfan af sjálfum sér - opið hús hjá Fræðslu og frístundasviði Mosfellsbæjar
Fyrsta opna hús ársins hjá Fræðslu- og frístundasviði Mosfellsbæjar verður haldið miðvikudaginn 25. október klukkan 20:00. Að þessu sinni verður fyrirlesturinn haldinn í sal Lágafellsskóla.
Meira ...

Geðheilsudagurinn

05/10/17Geðheilsudagurinn
Fyrirlesarinn Bjarni Fritzson heimsótti unglingana okkar í dag í tilefni af Geðheilsudeginum. Þetta er annað árið í röð sem haldið er upp á daginn fyrir unglinga bæjarins og að þessu sinni var áhersla lögð á að viðhalda góðri geðheilsu. Krakkarnir tóku virkan þátt og sýndu málefninu mikinn áhuga.
Meira ...

2. EDJ í Byrjendalæsi

28/09/17
Það var skemmtilegt í kennslustund hjá 2.EDJ þegar nemendur voru í Byrendalæsi. Þá fengu þeir líka að spila veiðimann og leysa stafasúpu. Gaman gaman!
Meira ...

Skólaakstur mánudaginn 25. september fellur niður

21/09/17
Mánudaginn 25. september er fræðsludagur grunnskóla og frístundar og munu skólarúturnar því ekki ganga þann dag.
Meira ...

Kynningarfundir í eldri deild

13/09/17Kynningarfundir í eldri deild
Í byrjun september buðum við foreldrum nemenda í 7.-10. bekk velkomna á morgunfund í skólanum. Fór þar fram kynning á komandi skólaári þar sem meðal annars var farið yfir ástundun, forvarnir, námið, skólaferðalög, lestrarstefnu og fleira sem viðkemur skólastarfinu. Fundirnir voru vel sóttir og hafa til að mynda aldrei fleiri bekkjarfulltrúar boðið sig fram. Við erum afar þakklát fyrir það og hlökkum til samstarfsins.
Meira ...

Síða 33 af 84

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira