Fréttasafn
2024
2023
mars, maí, júní, september, desember.
2022
janúar, febrúar, mars, apríl, september, október.
2021
janúar, mars, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2020
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2019
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, ágúst, september, október, desember.
2018
janúar, febrúar, mars, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2017
janúar, febrúar, mars, apríl, júní, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2016
janúar, febrúar, mars, apríl, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2015
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2014
apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2013
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júlí, ágúst, september.
2012
janúar, febrúar, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2011
febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, nóvember, desember.
2010
Fréttir
Nemendur úr 9. og 10. bekk í Varmárskóla heimsóttu Riga í Lettlandi 11. – 16. febrúar
17/02/12Vikuna 11. – 16. febrúar voru 15 nemendur og þrír kennarar úr Varmárskóla, í Riga í Lettlandi að taka þátt í Nordplus junior verkefni. Nemendurnir heimsóttu jafnaldra sína í Rīgas Zolitūdes Ģimnazija skólanum.
Þorrablót hjá 4-JV
15/02/12Krakkarnir í 4. JV voru með Þorrablót og buðu foreldrum uppá kynningu úr námsefninu um Ísland áður fyrr. Börnin og foreldrar þeirra komu með girnilegan Þorramat, sem allir gæddu sér á. Sjá fleiri myndir á myndasíðunni 4.JV Þorrablót.
Ekki verður farið í skíðaferðina í eldri deild í dag.
15/02/12Lokað er í Bláfjöllum í dag og því verður ekki farið í skíðaferðalagið í dag. Kennsla samkvæmt stundatöflu er í dag.
ABC barnaþorpin í Nairobi í Kenía
13/02/12Nemendur í 5. bekk munu fara um allan bæ um helgina að safna peningum í söfnunarbauka fyrir ABC. Krakkarnir fengu öll buff merkt ABC, þau munu bera þau þegar þau eru að safna.
Valtími hjá 2.bekk
13/02/12Börnin í 2.bekk fengu valtíma eftir velheppnuð bekkjarkvöld. Eins og sjá má á myndunum nutu börnin sín. Myndirnar eru á myndasíðu - 2.bekkur - valtími.
Stóra upplestrarkeppnin - undankeppni
10/02/12Undankeppni fyrir Stóru upplestrarkeppnina fór fram í hátíðarsal skólans miðvikudaginn 8. febrúar að viðstöddu fjölmenni. Tíu nemendur kepptu fyrir hönd íslenskuhópa sinna en nemendur höfðu áður valið fulltrúa sína í kennslustund í íslensku.
100 daga hátíð
09/02/12Þriðjudaginn 7.febrúar héldu 1. bekkingar uppá að það eru 100 dagar frá því að skólinn var settur. Krakkarnir komu í búningum og voru með kórónur sem á stóð 100. Þau eru búin að vera að telja hvern dag síðan skólinn byrjaði og flokka dagana í tugi, í dag náðu þau loksins 100.
8. AÞ fékk hvatningarverðlaun Rásar 2 í Lífshlaupinu
08/02/12Varmárskóli tekur þátt í lífshlaupinu og eru nemendur og starfsfólk hvatt til að hreyfa sig eins oft í viku og tök eru á. 8.AÞ í Varmárskóla var dreginn út í hvatningarleik Rásar 2 og fær í verðlaun ávaxtakörfu frá Ávaxtabílnum. Til hamingju með þetta 8.AÞ. Áfram Varmárskóli!
Nemendur frá Varmárskóla tóku þátt í skákdeginum
30/01/12Skákdagurinn var haldinn í Kjarna fyrir framan bókasafnið á fimmtudaginn 26.1. s.l. milli kl. 16:00 - 18:00 Nemendur úr Varmárskóla og foreldrar þeirra fjölmenntu til að tefla og eiga skemmtilega stund saman. Hér eru myndir af þessari skemmtilega degi - sjá myndasíða - skákdagur.
Starfsdagur og foreldraviðtöl
27/01/12Mánudaginn 30.janúar er starfsdagur og þá eru nemendur í fríi. Þriðjudaginn 31.janúar eru foreldraviðtöl og hafa foreldrar fengið tímasetningar um hvenær þeir eigi að mæta til viðtals með sínu barni.
Síða 70 af 84